Sáu „fljúgandi hlut“ fyrir sprengingu

AFP

Áhöfn Kokuka Coura­geous, tankskips í eigu jap­ansks skipa­fé­lags, segist hafa séð „fljúgandi hlut“ skömmu áður en önnur sprenging varð um borð. Áhöfn­um tveggja tank­skipa var bjargað í Óman­flóa í gær eft­ir spreng­ing­ar sem urðu til þess að eld­ar kviknuðu í þeim. 

„Áhöfnin segir að þeir hafi verið hæfðir af fljúgandi hlut. Þeir sáu hann með eigin augum,“ segir Yutaka Katada, yfirmaður Kokuka Sangyo-skipafélagsins. Hann segir að skipafélagið hafi fengið skýrslu um að eitthvað hafi komið fljúgandi yfir skipið, síðan hafi sprenging orðið og gat komið á skrokk þess. 

AFP

Að sögn Katada voru gerðar tvær árásir á Kokuka Courageous en  skipið var að koma frá Sádi-Ar­ab­íu með met­an­ólfarm sem átti að fara til Singa­púr. Þrír tímar hafi liðið milli árásásanna. Eldur kom upp í skipinu eftir sprenginguna en að sögn Katada urðu ekki miklar skemmdir á skipunu. Áhöfn skipsins var bjargað frá borði og einn skipverji var með minni háttar áverka.

Hitt skipið, Front Alta­ir, er í eigu norsks fyr­ir­tæk­is. Sigl­inga­mála­stofn­un Nor­egs sagði að skýrt hefði verið frá þrem­ur spreng­ing­um í norska skip­inu eft­ir að það hefði orðið fyr­ir „árás“. Stjórn­völd í Íran sögðu að öll­um í áhöfn­um skip­anna, alls 44 skip­verj­um, hefði verið bjargað. Front Alta­ir var á leiðinni frá Kat­ar til Kúveits með et­an­ólfarm.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert