Mótmælin halda áfram í Hong Kong

Frá mótmælunum í morgun.
Frá mótmælunum í morgun. AFP

Tugir þúsunda mótmælenda gengu um götur Hong Kong í morgun þar sem þess var krafist að stjórnvöld hætti alfarið við áform sín um að leyfa framsal brotamanna frá sjálfstjórnarsvæðinu til Kína.

„Hættið við þessi illu lög!“ hrópuðu mótmælendurnir og settu um leið en meiri pressu á Carrie Lam, héraðsstjóra Hong Kong, sem greindi frá því að gær að áformunum hafi verið frestað. Sagðist hún hafa vanmetið andstöðu almennings.

Mikill mannfjöldi hefur safnast saman í Hong Kong.
Mikill mannfjöldi hefur safnast saman í Hong Kong. AFP

„Viðbrögð Carrie Lam eru ekki einlæg. Hún veit að stjórnvöld munu ekki draga frumvarpið til baka og þess vegna ákvað ég að koma hingað í dag,“ sagði Terence Shek, einn af mótmælendunum.   

Á blaðamannafundi í gær sagði héraðsstjórinn að lög um framsal væru nauðsyn­leg til að stoppa í göt í kerf­inu og koma í veg fyr­ir að glæpa­menn fengju að vaða uppi í Hong Kong. 

 

 

 

 



AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert