Fundu fóstur í klósetti flugvélar

Lögreglan í Suður-Afríku rannsakar málið.
Lögreglan í Suður-Afríku rannsakar málið. Ljósmynd/FlySafair

Ræstingafólk á vegum suður-afríska flugfélagsins FlySafair fann fóstur í klósetti flugvélar félagsins er verið var að gera hana klára til brottfarar á föstudagsmorgun. Lögreglan í Suður-Afríku rannsakar málið.

Samkvæmt frétt AFP af þessu undarlega máli stóð til að flugvélin myndi fljúga á milli Durban og Jóhannesarborgar á föstudagsmorgun, en af því varð eðlilega ekki.

Í yfirlýsingu frá flugfélaginu segir að það muni gera allt sem að í þeirra valdi stendur til þess að hjálpa yfirvöldum að komast til botns í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert