Englandsdrottning lekur

Leki uppgötvaðist í HMS Queen Elizabeth í gær. Flaggskip breska …
Leki uppgötvaðist í HMS Queen Elizabeth í gær. Flaggskip breska flotans er nú komið til hafnar í Portsmouth. Ljósmynd/Royal Navy

Nýja flaggskip breska flotans, flugmóðurskipið HMS Queen Elizabeth, þurfti að hætta prófunarsiglingu eftir að leki uppgötvaðist, að því er fram kemur í frétt BBC. Skipið – sem er stærsta herskip Breta – kostaði 3,2 milljarða punda, jafnvirði tæplega 500 milljarða íslenskra króna.

Flugmóðurskipið sigldi frá herstöð sjóhersins í Portsmouth í síðasta mánuði og stóð til að vera á sjó í fimm vikur. Leki uppgötvaðist í fyrradag og hefur skipinu verið siglt til hafnar í Portsmouth.

Talsmaður varnarmálaráðuneytisins segir lekann „minniháttar hnökra í innra kerfi skipsins“, en vatn lak inn í afmarkað rými skipsins og tókst að loka svæðið af. Þá var vatninu dælt út úr skipinu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bilanir koma upp í skipinu, en í desember 2017, stuttu eftir að því var afhent sjóhernum, kom upp leki og láku 200 lítrar á klukkustund inn í skipið. Þá hefur einnig vatnsslökkvikerfi í flugskýli skipsins farið af stað fyrir slysni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert