Fella niður mál gegn Spacey

Leikarinn Kevin Spacey.
Leikarinn Kevin Spacey. AFP

Saksóknari hefur fallið frá ákæru á hendur leikaranum Kevin Spacey vegna meintrar kynferðislegrar áreitni á hendur ungum manni á veitingastaðnum Nantucket í Massachusetts árið 2016. The New York Times greinir frá

Spacey, sem er 59 ára, var ákærður fyrir að þukla á kynfærum mannsins sem var 18 ára þegar meint brot áttu að hafa átt sér stað. Spacey hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu. Leik­ar­inn hef­ur verið ásakaður um fjölda kyn­ferðis­brota en hann hef­ur aðeins verið ákærður í þessu eina máli sem hefur nú verið fellt niður.

Í síðasta mánuði var ýmislegt sem benti til þess að málið stæði ekki á sterkum grunni. Snjallsími sem var eitt af sönnunargögnum í málinu fannst ekki auk þess sem fallið var frá ákærunni nokkrum dögum eftir að ákæran var lögð fram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert