12 látnir eftir íkveikju í Japan

Slökkvilið að störfum við myndverið. 12 hið minnsta eru taldir …
Slökkvilið að störfum við myndverið. 12 hið minnsta eru taldir hafa farist í íkveikjunni og tugir slasast. AFP

12 manns hið minnsta eru taldir hafa farist í eldsvoða í teiknimyndastúdíói í Kyoto í Japan í morgun. BBC segir slökkvilið telja að um íkveikju sé að ræða. Tugir til viðbótar slösuðust.

Samkvæmt japönskum fjölmiðlum braut maður sér leið inn í myndver Kyoto Animation Co. og úðaði þar vökva, sem ekki er enn búið að greina.

Lögregla handtók meintan geranda, sem hefur enn ekki verið nafngreindur, en hann var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar vegna sára sem hann hlaut í eldinum.

„Karlmaður úðaði vökva og kveikti svo í honum,“ hefur AFP-fréttaveitan eftir talsmanni lögregluyfirvalda í Kyoto. Ekki hefur verið upplýst um hver ástæða árásarinnar kunni að vera.

Japanska NHK-sjónvarpsstöðin segir vitni hafa heyrt manninn segja „drepist“ áður en hann kveikti í húsinu.

Eldurinn kviknaði í kvikmyndaverinu, sem er í þriggja hæða byggingu, um hálfellefuleytið í morgun að staðartíma.

Björgunaraðgerðum er ekki lokið og vinnur slökkviliðið nú að því að ná út nokkrum einstaklingum sem fastir eru inni í húsinu.

Fólk í nágrenni myndversins segist hafa heyrt röð sprenginga og að það hafi síðar séð fólk borið út á teppum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert