Búast við efnhagskreppu í lok árs

Bresk stjórnvöld búast við efnahagskreppu í lok árs takist ekki …
Bresk stjórnvöld búast við efnahagskreppu í lok árs takist ekki að semja um Brexit. AFP

Efnahagskreppa sem varir í eitt ár mun skella á í Bretlandi fari svo að Bretar yfirgefi Evrópusambandið án útgöngusamnings. Þetta kemur fram í opinberri efnahagsspá bresku stjórnarinnar sem birt var í dag.

„Árslöng efnahagskreppa mun hefjast í Bretlandi á fjórða ársfjórðungi 2019 yfirgefi Bretland blokkina 31. október án samnings, með engri Brexit-aðlögun,“ sagði í skýrslunni sem gefin er út af stofnun sem hefur yfirumsjón með fjárhagsáætlun stjórnvalda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert