13 milljónir horfðu á Mueller

Robert Mueller var yfirheyrður í sjö klukkustundir í gær af …
Robert Mueller var yfirheyrður í sjö klukkustundir í gær af dómsmála- og njósnanefndum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. AFP

Tæplega 13 milljónir Bandaríkjamanna horfðu á vitnisburð Robert Muellers, sérstaks saksóknara FBI, fyrir dómsmála- og njósnanefndum Bandaríkjaþings í gær.

Fátt nýtt kom fram í sjö klukkustunda löngum vitnisburði Muellers fyrir þingnefndunum, sem sendur var út í beinni útsendingu.

Vitnisburðar hans um skýrsluna af afskiptum rússneskra ráðamanna af bandarísku forsetakosningum 2016 hafði verið beðið í nokkurn tíma.

Reuters segir Mueller bersýnilega hafa fundist óþægilegt að bera vitni fyrir þinginu, en áður hefur verið greint frá því að hann væri á móti því að að koma fyrir nefndir þingsins. Skýrslan væri hans vitnisburður.

Í inn­gangs­framb­urði sín­um sagðist Mu­ell­er ekki ætla að svara öll­um spurn­ing­um þing­manna og hann sagðist ekki ætla að segja hvort að Trump hafi framið glæp. Þá full­yrti hann að rann­sókn embætt­is hans hafi verið gerð á „sann­gjarn­an og sjálf­stæðan hátt“. 

Ólíkt því sem Trump hef­ur ít­rekað full­yrt, sagði Mu­ell­er skýrslu sína um af­skipti Rússa, ekki staðfesta að for­set­inn hafi ekki framið glæp. 

„Niður­stöðurn­ar gefa í skyn að for­set­inn sé ekki hreinsaður af sök fyr­ir meint­ar gjörðir hans,“  sagði Mu­ell­er og bætti við að það væri „rétt“ að Trump gæti verið ákærður fyr­ir að hindra fram­gang rétt­vís­inn­ar þegar hann læt­ur af embætti for­seta. 

Fjöldinn sem fylgdist með vitnisburði Muellers í gær var þó töluvert minni en fylgdist með yfirheyrslum þingsins yfir Brett Kavanaugh vegna tilnefningar hans í embætti hæstaréttardómara.

Segir Reuters 20,4 milljónir hafa fylgst með útsendingunni þá, en 19,2 milljónir með Mueller nú. 19,5 milljónir fylgdust þá með vitnaleiðslum þingsins yfir James Comey, fyrrverandi forstjóra FBI, árið 2017 vegna þeirrar ákvörðunar Donald Trump Bandaríkjaforseta að reka hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert