Óleyfileg mótmæli halda áfram

Frá mótmælum í Hong Kong í dag.
Frá mótmælum í Hong Kong í dag. AFP

Þúsundir mótmælenda streymdu út á götur í Hong Kong í dag þar sem þeir lokuðu stórum götum. Mótmælendur hunsa lögreglu sem bannaði mótmæli þeirra en hópurinn reiddist afskiptaleysi lögreglu þegar grímuklæddir menn réðust á fólk í lestarstöð í síðustu viku.

Mótmælendur klæddust svörtu og héldu á regnhlífum. Þeir hrópuðu slagorð gegn lögreglu á meðan gengið var í gegnum viðskiptahverfið.

Lögregla hafði veitt leyfi til mótmæla í almenningsgarði en hafði sagt að þar fyrir utan væri ólöglegt að safnast saman.

Regnhlífar hafa verið áberandi í mótmælum síðustu daga.
Regnhlífar hafa verið áberandi í mótmælum síðustu daga. AFP

Lögregla beitti táragasi á mótmælendur og skaut gúmmíkúlum í átt að þeim þar sem mótmælt var í Yen Long hverfinu í gær.

Mót­mælt hef­ur verið í Hong Kong frá því um miðjan júní þegar stjórn­völd kynntu áætl­un sína að leggja fram framsals­frum­varp sem marg­ir inn­fædd­ir í Hong Kong töldu vera Tróju­hest Kín­verja til að fá auk­in völd í sjálf­stjórn­ar­héraðinu.

Hong Kong er talin ein öruggasta borg í heimi. Hins vegar hefur ofbeldi milli mótmælanda, lögreglu og grímuklæddra manna aukist síðustu daga.

Rík­is­stjóri Hong Kong, Carrie Lam, þykir alltof höll und­ir ásælni Kín­verja um meiri yf­ir­ráð yfir sjálf­stjórn­ar­héraðinu og er henni vantreyst mjög af íbú­um Hong Kong.

Mót­mæl­end­ur hafa lofað því að viðhalda þrýst­ingi á stjórn­völd í Hong Kong þangað til kröf­um þeirra verður mætt en þær eru meðal ann­ars að Carrie Lam segi af sér og að lofað verði að framsals­frum­varpið verði aldrei lagt fyr­ir í framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert