Saka Trump um „efnahagsleg hryðjuverk“

Mik­ill póli­tísk­ur órói hef­ur verið í land­inu frá ársbyrjun, eða …
Mik­ill póli­tísk­ur órói hef­ur verið í land­inu frá ársbyrjun, eða frá því Juan Guaidó, þing­for­seti og leiðtogi stjórn­ar­and­stöðunn­ar, lýsti sig starf­andi for­seta. AFP

Yfirvöld í Venesúela saka Bandaríkjastjórn um „efnahagsleg hryðjuverk“ með því að frysta allar eignir venesúelska ríkisins í Bandaríkjunum. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti fyr­ir­skipaði slíkar aðgerðir í morgun ásamt því að banna öll sam­skipti við stjórn­völd í Venesúela.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu frá Banda­ríkja­stjórn að ákvörðun Trumps hafi verið tek­in vegna þess að Nicolas Maduro, for­seti Venesúela, og aðrir tengd­ir hon­um hefðu tekið sér völd sem hann hefði ekki sem og mann­rétt­inda­brota sem fram­in hefðu verið. Banda­ríkja­stjórn hef­ur ekki gripið til slíkra aðgerða gegn rík­is­stjórn á vest­ur­hveli jarðar í rúm­lega þrjá ára­tugi að því er seg­ir í viðskipta­blaðinu Wall Street Journal.

Stjórnvöld í Venesúela segir að aðgerðirnar setji viðræður ríkjanna um stjórnmálaástandið í Venesúela út af sporinu. Bandaríkin viðurkenna ekki Maduro sem löglegan forseta en styðja Juan Guaidó, forseta þingsins og leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem leiðtoga ríkisins til bráðabirgða. Guaidó, sem lýsti sjálfan sig starfandi forseta landsins í upphafi árs, nýtur stuðnings tuga ríkja en ætlunarverk hans, að koma Maduro frá völdum, hefur ekki tekist. 

Friðarviðræður full­trú­a stjórn­ar og stjórn­ar­and­stöðu Venesúela hófust í Ósló í maí og hafa þær haldið áfram í áföngum á Barbados, án árangurs. 

Yfirvöld í Caracas, höfuðborg Venesúela, segja að nýjasta útspil Bandaríkjanna sýni að Bandaríkjastjórn og bandamenn hennar vilji að friðarviðræðurnar mistakist þar sem þau „óttast niðurstöðuna og þann  ávinning sem henni kann að fylgja.“ Yfirvöld í Venesúela eru hins vegar staðráðin í að láta aðgerðir Bandaríkjastjórnar ekki hafa áhrif á viðræðurnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert