Öflug sprenging við dönsku skattstofuna

Miklar skemmdir urðu á framhlið dönsku skattstofunnar í öflugri sprengingu …
Miklar skemmdir urðu á framhlið dönsku skattstofunnar í öflugri sprengingu í gærkvöldi. Lögregla er með málið í rannsókn. AFP

Öflug sprenging varð við aðalskrifstofur dönsku skattstofunnar í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Enginn slasaðist en lítið er vitað um hvað olli sprengingunni og hefur danska lögreglan auglýst eftir vitnum að atvikinu. 

„Það er of snemmt að segja til um hver ber ábyrgð á sprengingunni,“ segir Jørgen Bergen Skov rannsóknarlögreglumaður. Bráðabirgðalögreglustöð hefur verið komið upp skammt frá skattstofunni þar sem fólk getur gefið sig fram ef það varð vitni að sprengingunni. 

Sprengingin varð á ellefta tímanum að staðartíma og stóð rannsókn lögreglu og sprengjusérfræðinga yfir í alla nótt. Stórt svæði við bygginguna var girt af og sprengjuleitarhundar voru sendir á vettvang.  Mestar urðu skemmdirnar á anddyri skattstofunnar og dreifðust glerbrot víða um nærliggjandi götur. 

Tveir voru inni í byggingunni þegar sprengingin varð en sluppu þeir ómeiddir. Mereta Agergaard skattstjóri kynnti sér aðstæður í morgun og bað hún starfsmenn skattstofunnar að halda sig heima í dag þar sem lögregla er enn að störfum.  

Engan sakaði í sprengingunni.
Engan sakaði í sprengingunni. Ljósmynd/Twitter

Morten Bødskov, skatta­málaráðherra Danmerkur, segir í samtali við Ritzau-fréttastofuna að augljóst sé að framhlið byggingarinnar hafi verið sprengd í loft upp af ásettu ráði. „Það er gjörsamlega óásættanlegt,“ segir ráðherrann. 

Íbúum á Austurbrú brá verulega við sprenginguna. Ina Christensen, íbúi í hverfinu, segir í samtali við danska ríkisútvarpið að hún hafi haldið í fyrstu að byggingarkrani hefði oltið um koll, svo hár var hvellurinn. „Ég hef aldrei heyrt svona nokkuð áður.“ 

Sprengingin hefur áhrif á lestarsamgöngur sem liggja niðri milli Østerport og Hellerup.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert