Mótmælt á flugvellinum í Hong Kong

Fjöldi mótmælenda er samankominn á flugvellinum í Hong Kong þar …
Fjöldi mótmælenda er samankominn á flugvellinum í Hong Kong þar sem hópurinn hyggst halda til um helgina. AFP

Mótmælendur hafa safnast saman á flugvellinum í Hong Kong þar sem þeir hyggjast mótmæla næstu þrjá daga. Krefjast þeir að Carrie Lam, rík­is­stjóri Hong Kong, segi af sér, að sjálf­stæð rann­sókn verði gerð á fram­göngu lög­reglu, að hinum hand­teknu verði veitt náðun og að sjálfs­stjórn­ar­svæðinu verði veitt­ur rétt­ur til að kjósa leiðtoga sína lýðræðis­lega.

Mótmælendur klæðast svörtu og vilja einna helst vekja athygli erlendra ferðamanna á harðstjórn og lögregluofbeldi sem mótmælendur hafa sætt. Mótmælin vekja óneitanlega athygli og hafa ferðalangar staldrað við og tekið myndir af mótmælendum og þegið bæklinga sem skýra hlið mótmælenda af atburðarrás síðustu vikna. 

Mót­mæl­in í Hong Kong hafa nú varað í um tvo mánuði og hafa kín­versk stjórn­völd und­arfarið orðin óþol­in­móðari gagn­vart Carrie Lam og ráðamönn­um henn­ar. Mót­mæl­in hafa oft­ar en ekki orðið of­beld­is­full og tára­gasi og gúmmí­kúl­um beitt ít­rekað af lög­reglu. 

Mótmælendur klæðast svörtu og vilja einna helst vekja athygli erlendra …
Mótmælendur klæðast svörtu og vilja einna helst vekja athygli erlendra ferðamanna á harðstjórn og lögregluofbeldi sem mótmælendur hafa sætt. AFP

Aðgerðirnar eru í óþökk yfirvalda sem hafa þó ekki haft afskipti af mótmælunum enn sem komið er og lögregla hefur ekki verið kölluð til. Starfsemi flugvallarins hefur ekki raskast vegna mótmælanna.

Alls hafa tæp­lega 600 manns verið hand­tekn­ir síðan mót­mæl­in hóf­ust 9. júní, en ekki ligg­ur fyr­ir hve mörg­um hef­ur verið sleppt úr haldi. Þá liggur heldur ekki fyr­ir hve marg­ir hafa verið ákærðir fyr­ir óeirðir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert