Flugumferð að komast í eðlilegt horf

Farþegar bíða eftir að innrita sig í flug frá alþjóðaflugvellinum …
Farþegar bíða eftir að innrita sig í flug frá alþjóðaflugvellinum í Hong Kong í morgun. AFP

Opnað hefur verið aftur fyrir flugumferð um alþjóðaflugvöllinn í Hong Kong eftir að flugi um hann var aflýst tvo daga í röð. Þúsundir mótmælenda hafa safnast þar saman undanfarna daga og ríkti mikil ringulreið á flugvellinum í gærkvöldi og nótt er kom til átaka milli mótmælenda og óeirðalögreglu.

Gerðu mót­mæl­end­ur m.a. aðsúg að þrem­ur mönn­um, sem reynd­ust vera kín­versk­ir lög­reglu­menn. Lög­regl­an í Hong Kong hef­ur viður­kennt að lög­reglu­menn hafi dul­bú­ist sem mót­mæl­end­ur til að reyna að hafa stjórn á aðstæðum. 

Hundruðum flugferða var aflýst í gær eftir að mótmælendur fylltu brottfararsalinn og var í kjölfarið lokað á frekara flug. BBC segir að svo virðist sem flugumferð sé nú að mestu komin í samt lag, þótt enn sé eitthvað um tafir og aflýst flug.

Flugvallaryfirvöld  segjast hafa fengið tímabundna heimild til að banna mótmælendur frá vissum svæðum á flugvellinum og muni það eiga við öll svæði sem ekki séu sérstaklega tilgreind til mótmæla.

Mótmælt er nú í Hong Kong tíundu vikuna í röð, en mótmælin hófust vegna óánægju með lagafrumvarp sem átti að heimila framsal fólks til meginlands Kína.

Alþjóðaflug­völlurinn í Hong Kong  er einn fjöl­farn­asti flug­völl­ur í heim­in­um. Mótmælin þar hafa að mestu farið friðsamlega fram, utan átökin í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert