Bandarísk stjórnvöld sögðu í dag að þau hefðu „djúpar áhyggjur“ af hreyfingum kínverskra hersveita á meginlandi Kína nærri Hong Kong og hvöttu kínversk stjórnvöld til þess að virða sjálfsstjórn Hong Kong.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, sem AFP-fréttaveitan greinir frá, en í gær varaði bandaríska leyniþjónustan við því að kínversk stjórnvöld væru að færa hersveitir að mörkum sjálfstjórnarhéraðsins Hong Kong vegna aukinnar hörku mótmælenda í Hong Kong gegn stjórnvöldum.
„Bandaríkin hvetja stjórnvöld í Peking til þess að standa við skuldbindingar sínar í sameiginlegri yfirlýsingu Kínverja og Breta um að leyfa Hong Kong að njóta mikils sjálfræðis,“ segir í yfirlýsingunni.
Matt Rivers, fréttamaður CNN, birti í dag myndskeið af kínverskum hermönnum á íþróttavelli í Shenzhen, sem er einungis nokkra kílómetra frá landamærum sjálfstjórnarhéraðsins. Hann ritaði á Twitter-síðu sína að yfirmaður hefði neitað að útskýra veru herliðsins á svæðinu og beðið fréttafólk um að fara.
We can confirm the presence of a large number of Chinese paramilitary troops stationed at a sports complex in Shenzhen, just miles from the border with Hong Kong. Some seen here carrying shields and helmets. An officer wouldn’t tell us why they were there and forced us to leave. pic.twitter.com/cUzRLdiqb5
— Matt Rivers (@MattRiversCNN) August 14, 2019