Framleiðslufyrirtæki í eigu bandaríska leikarans Robert De Niro hefur höfðað mál gegn fyrrverandi starfsmanni sem er sakaður um að hafa dregið sér fé og horft á þáttaraðir á Netflix á vinnutíma.
Canal Productions sakar Chase Robinson um að hafa brugðist skyldum sínum og krefst þess að fá sex milljónir dala í bætur, að því er BBC greindi frá.
Samkvæmt reikningi hennar á LinkedIn gekk hún til liðs við fyrirtækið árið 2008.
Árið 2017 hlaut hún stöðuhækkun sem varaforseti framleiðslu- og fjármáladeildar. Á meðal verkefna hennar var að tryggja að sjóðir fyrirtækisins yrðu ekki misnotaðir.
Hún er sökuð um að hafa horft „stjarnfræðilega” mikið á þáttaraðir á Netflix á vinnutíma. Í janúar er hún sögð hafa horft á 55 þætti af Friends á fjórum dögum og 20 þætti af Arrested Development og 10 þætti af Schitt´s Creek í mars.