„Andstyggileg“ viðbrögð Frederiksen

Donald Trump ræðir við fjölmiðla í dag fyrir framan Hvíta …
Donald Trump ræðir við fjölmiðla í dag fyrir framan Hvíta húsið. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að viðbrögð Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, með því að neita að ræða við hann um mögulega sölu á Grænlandi hafa verið „andstyggileg”.

Trump sagðist við blaðamenn hafa móðgast vegna ummæla Frederiksen um að slíkur samningur væri fáránlegur. „Hún setti þetta ekki fallega fram. Hún hefði getað sagt nei, við höfum ekki áhuga,” sagði Trump.„Hún er ekki bara að tala við mig, hún er að tala við öll Bandaríkin.”

Frederiksen sagðist á blaðamannafundi í fyrr í dag vera bæði örg og undrandi yfir ákvörðun Trump um að aflýsa heimsókn sinni til Danmerkur. Til stóð að hann kæmi þangað í heimsókn í upphafi næsta mánaðar, eða eftir tólf daga.

Frederik­sen sagðist, líkt og fjöl­marg­ir, hafa hlakkað til heim­sókn­ar­inn­ar og und­ir­bún­ing­ur henn­ar hafi verið í full­um gangi. Hún und­ir­strikaði þó að ákvörðunin yrði ekki til þess fall­in að breyta „því góða sam­bandi sem er milli Dan­merk­ur og Banda­ríkj­anna“. 

Mette Frederiksen á blaðamannafundi í morgun.
Mette Frederiksen á blaðamannafundi í morgun. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert