Skoti hleypt af í Hong Kong

Lögreglumaður miðar byssu sinni að mótmælendum í Hong Kong.
Lögreglumaður miðar byssu sinni að mótmælendum í Hong Kong. AFP

Lögregluþjónn í Hong Kong hleypti skoti af byssu í mótmælunum sem fram fóru í borginni í dag. Er það í fyrsta sinn sem hleypt er af alvöru byssu í mótmælunum, sem staðið hafa yfir í þrjá mánuði.

Lögreglan hefur hingað til beitt táragasi og gúmmíkúlum til að hafa hemil á og sundra mótmælendum. Í dag greip hún einnig til þess ráðs að sprauta á þá vatni með vatnskanónum.

„Samkvæmt mínum skilningi hleypti samstarfsfélagi minn af byssu rétt í þessu... það fyrsta sem ég heyrði var að það hefði verið lögreglumaður sem hleypti af,“ sagði lögreglumaður við fréttamiðla skömmu eftir að skotinu var hleypt af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert