Meng Meng eignaðist tvíbura

AFP

Pandan Meng Meng eignaðist tvíbura í dýragarðinum í Berlín um helgina og er þetta í fyrsta skipti sem pöndur fæðast í Þýskalandi.

„Meng Meng varð móðir í tvígang! Við erum svo glöð, við erum orðlaus,“ segir í twitterfærslu dýragarðsins og birt er myndskeið af nýbakaðri móður með annað afkvæmið.

Framkvæmdastjóri dýragarðsins, Andreas Knieriem, segir að móður og afkvæmum heilsist vel. Ekki hefur verið gefið upp kyn tvíburanna en þeir voru 136 og 186 grömm við fæðingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert