Trump varar við „mjög slæmu fólki“

Donald Trump.
Donald Trump. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að bandarísk stjórnvöld verði að vera varkár varðandi það að taka á móti eftirlifendum frá Bahamaeyjum eftir að fellibylurinn Dorian gekk yfir eyjarnar í síðustu viku. Meðal þeirra geti verið „mjög slæmt fólk“.

Í gær var komið í veg fyrir að nokkur hundruð manns færu um borð í ferju frá Bahama á leið til Flórída vegna þess að fólkið var ekki með tilskilið landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Bandarískur landamæravörður segir að um mistök hafi verið að ræða.

Staðfest hef­ur verið að 43 hafi far­ist þegar Dorian gekk yfir Bahamaeyjar en ótt­ast er að tala lát­inna eigi eft­ir að hækka veru­lega.

Sam­einuðu þjóðirn­ar hafa sagst telja um 70.000 manns þurfa á húsa­skjóli og mat­væl­um að halda á Bahama­eyj­um eft­ir Dori­an.

Bahama-eyjar fóru illa út úr fellibylnum Dorian, sem gekk yfir …
Bahama-eyjar fóru illa út úr fellibylnum Dorian, sem gekk yfir eyjarnar í síðustu viku. AFP

Trump sagði í samtali við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að allir sem kæmu til Bandaríkjanna þyrftu að vera með alla pappíra á hreinu. Hann sagði að íbúar Bahama hefðu lent í miklum vandræðum vegna fólks sem hefði komið þangað óvelkomið.

„Ég vil ekki hleypa fólki til Bandaríkjanna sem átti ekki að fá að koma til Bahamaeyja. Þeirra á meðal er vont fólk,“ sagði Trump sem benti á að vonda fólkið væri í glæpagengjum og eiturlyfjasalar.

Bent er á í frétt AFP að forsetinn hafi gert allt sem í hans valdi stendur til að stöðva flæði flóttafólks til landsins frá því hann tók við embætti forseta fyrir þremur árum. Sér í lagi fólks frá löndum Mið-Ameríku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert