Höfnuðu tillögu um þingkosningar

Þingið kemur næst saman eftir rúman mánuð, 14. október nánar …
Þingið kemur næst saman eftir rúman mánuð, 14. október nánar tiltekið, en Elísa­bet Breta­drottn­ing samþykkti í síðasta mánuði til­lögu John­sons þess efn­is. AFP

Þingmenn á breska þinginu höfnuðu í kvöld tillögu Boris Johnsons forsætisráðherra um að þingkosningar fari fram um miðjan október. Fyrri til­lögu þess efn­is var hafnað í síðustu viku. 293 þingmenn greiddu atkvæði með þingkosningum en 46 á móti. Aukinn meirihluta þurfti svo að tillagan yrði samþykkt. 

Að atkvæðagreiðslunni lokinni var þinginu slitið. 

Þingið kemur næst saman eftir rúman mánuð, 14. október nánar tiltekið, en Elísa­bet Breta­drottn­ing samþykkti í síðasta mánuði til­lögu John­sons þess efn­is. Áætlað er að Bretar gangi úr Evrópusambandinu tveimur vikum eftir að þingið kemur saman, eða 31. október, óháð því hvort útgöngusamningur hafi verið undirritaður. 

Þing­menn í stjórn­ar­and­stöðunni hafa gagn­rýnt þá ákvörðun John­sons að slíta þing­inu en stjórn­völd segja full­kom­lega eðli­legt sem og tíma­bært að gera það. Jeremy Corbyn, formaður Verkamannaflokksins, segir að flokkurinn muni gera allt til að koma í veg fyrir að Bretland gangi úr ESB án samnings. „Við munum ekki styðja tillögu um kosningar fyrr en ljóst er að það gerist ekki,“ sagði hann á þinginu í dag. Corbyn segist vilja kosningar en á sama tíma komast hjá útgöngu án samnings. 

Stjórn­völd hafa sagt að þau ætli ekki að óska eft­ir frek­ari frest­un á út­göngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu þrátt fyr­ir að lög þess efn­is hafi verið samþykkt fyr­ir helgi. „Ég mun ekki biðja um frekari frest,“ segir Johnson. 

Leiðtogar Evrópusambandsins koma saman 17. október og verður það líklega síðasti möguleiki Johnsons til að semja um útgöngu Breta, annars er útlit fyrir að ríkið gangi samningslaust úr sambandinu 31. október. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert