Dregið hefur úr dauða barna og mæðra

Barn eða móðir deyr á ellefu sekúndna fresti
Barn eða móðir deyr á ellefu sekúndna fresti Ljósmynd/UNICEF

Frá árinu 2000 hefur barnadauði í heiminum dregist saman um næstum helming og mæðradauði um þriðjung. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnana Sameinuðu þjóðanna, undir forystu UNICEF, og Alþjóðheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um barnadauða í heiminum sem birt var í dag. Þennan árangur er að mestu að þakka bættu aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Hins vegar deyr barn eða móðir á ellefu sekúndna fresti.

„Í löndum þar sem öllum stendur til boða örugg, ódýr og góð heilbrigðisþjónusta lifa konur og börn af og þrífast.“ Þetta er haft eftir dr. Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmanni WHO í tilkynningu.

Ljósmynd/UNICEF

Áætlanir gera ráð fyrir að 6,2 milljónir barna undir 15 ára aldri hafi látist í fyrra og ríflega 290 þúsund konur látist á meðgöngu eða vegna vandkvæða tengdra fæðingu árið 2017. Af heildartölu látinna barna þá létust 5,3 milljónir þeirra á fyrstu fimm árum ævinnar, þar af helmingur á fyrsta mánuðinum.

„Um allan heim er fæðing barns hamingjustund. En samt, á ellefu sekúndna fresti, breytist fæðing í fjölskylduharmleik,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF, í tilkynningu.

Dregið hefur úr barna- og mæðradauða.
Dregið hefur úr barna- og mæðradauða. ljósmynd/UNICEF

Skýrslan sýnir einnig að ójafnt er gefið í þessum efnum eftir heimshlutum. Í löndum sunnan Sahara-eyðimerkurinnar í Afríku eru lífslíkur umtalsvert verri en annars staðar. Mæðradauði er fimmtíu sinnum algengari hjá konum þar og börn þeirra eru tíu sinnum líklegri til að látast á fyrsta mánuði ævi sinnar en í velmegunarsamfélögum.

Frá árinu 1990 hefur til að mynda dauðsföllum barna undir 15 ára aldri dregist saman um 56 prósent. Farið úr 14,2 milljónum dauðsfalla í 6,2 milljónir í fyrra. Mestur árangur hefur náðst í austur og suðausturhluta Asíu þar sem dauðsföllum barna undir fimm ára aldri hefur fækkað um 80 prósent.

Ljósmynd/UNICEF

Á árunum 2000 til 2017 hefur mæðradauði dregist saman í heildina um 38 prósent. Mestur árangur þar hefur náðst í Mið- og Suður-Asíu þar sem tilfellum mæðradauða hefur fækkað um 60 prósent.

Henrietta Fore framkvæmdastjóri UNICEF
Henrietta Fore framkvæmdastjóri UNICEF Ljósmynd/UNICEF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert