Trump viðurkennir að hafa nefnt Biden við Úkraínuforseta

Donald Trump hefur viðurkennt að hafa nefnt Biden við Zelensky.
Donald Trump hefur viðurkennt að hafa nefnt Biden við Zelensky. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur viðurkennt að hafa nefnt málefni Joe Bidens, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðanda, og sonar hans í símtali sem hann átti við Volodymr Zelensky, forseta Úkraínu, í sumar.

BBC greinir frá og segir Trump nú standa frammi fyrir ásökunum um að hann hafi þrýst á Úkraínuforseta að taka Biden til rannsóknar sem hann neitar hins vegar að hafa gert.

Viðurkenning Trumps á símtalinu er sögð hafa kynt undir kröfu hjá þingmönnum Demókrataflokksins um að forsetinn verði ákærður fyrir embættisglöp og sagði Adam Schiff, öldunungadeildarþingmaður og formaður njósnanefndar þingsins, Trump með þessu kunna að hafa farið yfir mörkin. Schiff hefur til þessa verið mótfallinn því að forsetinn yrði ákærður.

Sjálfur hefur Biden hvatt til þess að símatal Trumps við Zelensky verði rannsakað frekar. 

Hunter Biden, sonur Joe Biden, var forstjóri gasfyrirtækis í Úkraínu á þeim tíma sem faðir hans gegndi embætti varaforseta Bandaríkjanna í stjórnartíð Baracks Obama og átti Biden þá töluverðan hlut að máli varðandi stefnu Bandaríkjanna í málefnum Úkraínu.

Mikið hefur verið deilt um málið undanfarna daga eftir að Washington Post greindi frá því í síðustu viku að starfsmaður leyniþjón­ustu Banda­ríkj­anna hefði lagt fram form­lega upp­ljóstr­un­arkvört­un eftir að Trump hefði lofað ónefndum erlendum þjóðhöfðingja einhverju sem hann mátti ekki lofa.

Fjöl­miðlar vest­an­hafs telja að lof­orð Trumps teng­ist Úkraínu en for­set­inn ræddi við Zelen­skyy í lok júlí og starfsmaður leyniþjón­ust­unn­ar kvartaði síðan yfir for­set­an­um 12. ág­úst.

Demó­krat­ar á þingi hafa reynt að fá kvört­un­ina af­henta en yf­ir­maður leyniþjón­ust­unn­ar hef­ur ekki látið hana af hendi.

Joe Biden, fyrrverandi varaforseti og nú forsetaframbjóðandi.
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti og nú forsetaframbjóðandi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert