Fox baðst afsökunar á ummælum um Thunberg

Greta Thunberg á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í New …
Greta Thunberg á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál í New York í gær. Farið var ófögrum orðum um sænsku unglingsstúlkuna á Fox News í gær. AFP

Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox News hefur beðið Gretu Thunberg afsökunar á ummælum sem álitsgjafi lét falla um hana í beinni útsendingu í gærkvöldi. Michael Knowles, sem kom inn sem álitsgjafi í þáttinn The Story with Martha MacCallum í gærkvöldi sagði Thunberg „andlega veikt sænskt barn“ sem væri verið að misnota í pólitískum tilgangi.

Orð Knowles hafa vakið þónokkra reiði og farið víða á samfélagsmiðlum, en Greta Thunberg er eins og flestir vita með Asperger-heilkenni. Christopher Hahn, sem einnig var álitsgjafi í þættinum á Fox í gær, skammaði Knowles fyrir að rægja Thunberg með þessum hætti, eins og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan.

Af Vísindavefnum: Hvað er Asperger-heilkenni?

Thunberg hefur verið nokkuð til umræðu í Bandaríkjunum síðustu daga, en í gær flutti hún innblásna ræðu um loftslagsmál á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í New York.

Fox News brást við skömmu eftir að þátturinn fór í loftið með því að segja ummælin algjörlega óásættanleg. „Við biðjum Gretu Thunberg og áhorfendur okkar afsökunar,“ sagði í yfirlýsingu frá stöðinni.

Donald Trump hefur einnig verið gagnrýndur í dag fyrir að hæðast að Thunberg í tísti í gærkvöldi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert