200 bandarískir hermenn verða sendir til Sádi-Arabíu á næstunni til að auka varnir landsins í kjölfar árása á tvær stórar olíuvinnslustöðvar í landinu fyrr í mánuðinum. Mark Esper, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir liðsaukann sendan að ósk stjórnvalda í Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fyrir eru um 1.000 bandarískir hermenn í Sádi-Arabíu.
Þá mun bandaríska varnarmálaráðuneytið einnig senda svokölluð „patriot“-flugskeyti til Sádi- Arabíu sem og fjórar ratsjár sem greina flugskeyti.
Talsmaður Bandaríkjastjórnar segir aðgerðirnar fyrst og fremst til að stuðla að öryggi og friði í Mið-Austurlöndum.
Utanríkisráðherra Sádi-Arabíu sagði fyrr í dag að allir möguleikar væru til skoðunar vegna drónaárásar á olíuvinnslustöðvar í landinu, meðal annars hernaðaríhlutun.
Sádar og Bandaríkjamenn segja Írana bera ábyrgð á árásunum. Leiðtogar Frakklands, Þýskaland og Bretlands tóku undir röksemdir Bandaríkjamanna á mánudag í sameiginlegri yfirlýsingu. Uppreisnarmenn húta í Jemen hafa lýst árásinni á hendur sér á meðan Íranar hafa alfarið hafnað því að þeir beri á nokkra árbyrgð.