Eignaðist sex börn með dóttur sinni

Breskir lögreglumenn að störfum.
Breskir lögreglumenn að störfum. AFP

Dómstóll í Wales er nú með til meðferðar mál manns sem er ákærður fyrir að hafa eignast sex börn með dóttur sinni. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa nauðgað henni 23 sinnum.

BBC segir manninn ennfremur vera ákærðan fyrir að hafa ítrekað nauðgað einni stúlknanna sem dóttir hans fæddi honum og annarri dóttur sinni.

Eru nauðgunarákærurnar gegn manninum 36 talsins, auk einnar ákæru um kynferðislega misþyrmingu. Segir saksóknarinn John Hipkin kviðdóminum að maðurinn hafi leikið dulspeking og sent dætrum sínum póst í hans nafni og sagt þeim hvað þær ættu að gera.

„Hann gerði það sem hann vildi við dætur sínar þrjár og náði þessari kerfisbundnu stjórn á þeim,“ sagði Hipkin og kvað manninn hafa gert það með heilaþvotti og svo nefndu „grooming“, sem felur í sér að vinna traust viðkomandi og vinna honum svo miska.

„Vilji þeirra var fullkomlega yfirtekin af honum. Hann bjó til falsveröld skreytta göldrum og dulspeki og notaði dulspeking til að fá þær til að stunda kynferðislegar athafnir með sér með því að senda skilaboð til þeirra með tölvupósti,“ sagði saksóknarinn.

Búist er við að réttarhöldin taki þrjár vikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert