Vildi láta skjóta flóttamenn í fæturna

Í nýútkominni bók tveggja blaðamanna New York Times er meðal …
Í nýútkominni bók tveggja blaðamanna New York Times er meðal annars sagt frá því þegar DonaldTrump á að hafa rætt þann möguleika við ráðgjafa sína, í einrúmi, að hermenn myndu skjóta flóttamenn í fæturna. Var honum bent á að það væri ólöglegt. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti stakk upp á því að flóttamenn yrðu skotnir í fæturna til að hægja á flæði þeirra yfir landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. 

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýútkominni bók sem rituð er af tveimur blaðamönnum New York Times. Í bókinni, sem ber heitið Border Wars: Inside Trump's Assault on Immigration, er fjallað um öfgafullar aðgerðir Trumps til að stemma stigu við komu flóttamanna til Bandaríkjanna. 

Í bókinni er meðal annars sagt frá því þegar Trump á að hafa rætt þann möguleika við ráðgjafa sína, í einrúmi, að hermenn myndu skjóta flóttamenn í fæturna. Var honum bent á að það væri ólöglegt. Áður hafði Trump lagt það til opinberlega að hermenn fengju leyfi til að skjóta flóttamenn sem grýttu hermenn við landamærin. 

Síki með krókódílum og snákum

Á forsetinn einnig að hafa lagt til að reisa rafmagnsgirðingu með gaddavír og reknöglum á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó og koma krókódílum og snákum fyrir í síki við landamærin. Hvorki forsetinn né talsmenn Hvíta hússins hafa brugðist við þeim fullyrðingum sem fram koma í bókinni. 

Michael Shear og Julie Davis eru höfundar bókarinnar og er efni hennar byggt á viðtölum við á annan tug embættismanna sem kjósa að koma fram undir nafnleynd. Flest ummæli forsetans eiga að hafa fallið í mars á þessu ári þegar innflytjendamál komust í hámæli. 

Inn­flytj­enda­mál­in hafa verið eitt af helstu stefnu­mál­um Trumps frá því hann sett­ist á for­seta­stól. Árið 2017 heim­ilaði for­set­inn að tekið yrði á móti 50.000 flótta­mönn­um, árið eft­ir var fjöld­inn minnkaður niður í 45.000 og svo niður í 30.000 í ár. Á næstu 12 mánuðum munu Bandaríkin taka á móti 40% færri flótta­mönn­um en þau hafa hingað til gert í for­setatíð Don­alds Trumps.

Bygging landamæramúrs var eitt af helstu kosningaloforðum Trumps í kosningabarátunni fyrir þremur árum. Banda­ríska varn­ar­málaráðuneytið hefur tryggt að 3,6 millj­arðar Banda­ríkja­dala sem nota átti í önn­ur verk­efni fari í að reisa múr­inn og er bygging hans nú þegar hafin. 

Hluti landamæramúrs við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó, séður frá Chihuahua-ríki …
Hluti landamæramúrs við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó, séður frá Chihuahua-ríki í Mexíkó. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert