Snýr fljótlega aftur eftir stunguárás

Rapparinn Krept.
Rapparinn Krept.

Rapparinn Krept segist hafa það ágætt og að hann muni snúa aftur fyrr en síðar eftir að hann var stunginn áður en hann átti að stíga á svið á tónleikum á vegum Breska ríkisútvarpsins í Birmingham í gærkvöldi.

Tónleikunum var aflýst eftir árásina en rapparinn særðist ekki alvarlega.

Samkvæmt lögreglu hlúðu sjúkraliðar að Krept á staðnum og hann var ekki fluttur á sjúkrahús. Lögregla leitar árásarmannsins.

Óeirðir brutust út í tónleikasalnum þegar tilkynnt var að dagskrá kvöldsins væri lokið en um 15.800 manns voru á svæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert