Google kynnir leikjaveituna Stadia

Google kynnir nýjung.
Google kynnir nýjung. AFP

Tæknirisinn Google tilkynnti í dag um fyrirhugaða opnun leikjaveitunnar Stadia, en í henni verður hægt að leika tölvuleiki án leikjatölva eða annars búnaðar, einungis nettengingar verður þörf. Gangi áætlanir eftir, verður Stadia opnuð 19. nóvember.

Tilkynnt var um þetta á viðburði á vegum Google í New York í dag

Stadia er teflt gegn Apple Arcade, áþekkri leikjaveitu Apple. Mánaðargjald fyrir Stadia verður 9,99 bandaríkjadollarar sem tvöfalt það sem Apple Arcadia kostar, að því er fram kemur í frétt AFP-fréttastofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert