Sænska akademían rannsakar nú uppruna símtals, sem írski rithöfundurinn John Banville fékk, þar sem honum var sagt að hann myndi hljóta Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. „Við höfum óskað eftir afriti af símtalaskránum okkar,“ segir Mats Malm ritari Nóbelsnefndar akademíunnar í skriflegu svari til SVT, en grunur leikur á um að símtalið hafi komið innan úr Börshúsinu, húsi sænsku akademíunnar við Stórtorgið í miðborg Stokkhólms, eða þá að einhver hafi látið líta út fyrir það.
Banville greinir frá í samtali við Irish Times að hann hafi í um 40 mínútur talið sig hafa unnið verðlaunin. Eftir að tilkynnt hafði verið um réttu verðlaunahafana, og Banville ekki þeirra á meðal, á blaðamannafundi stuttu síðar hafi Banville fengið símtal úr sama númeri þar sem honum var sagt að verðlaun hans hefðu verið „dregin til baka“.
Sænska akademían veitir bókmenntaverðlaun Nóbels. Tilkynnt er um verðlaunin á blaðamannafundi að verðlaunahöfum fjarstöddum, en verðlaunin verða síðan veitt við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi 10. desember.
Að þessu sinni verða tvenn bókmenntaverðlaun veitt, fyrir árin 2018 og 2019, en engin bókmenntaverðlaun voru veitt í fyrra eftir að starfsemi akademíunnar lamaðist í kjölfar þess að upp komst um kynferðisglæpi eins nefndarmanna. Hinir réttu verðlaunahafar eru hin pólska Olga Tokarczuk, sem fær verðlaun síðasta árs, og Peter Handke frá Austurríki.