Kínverjar vilja nýjan leiðtoga í Hong Kong

Carrie Lam, rík­is­stjóri Hong Kong.
Carrie Lam, rík­is­stjóri Hong Kong. AFP

Stjórnvöld í Kína vilja skipta um leiðtoga í Hong Kong áður en kjörtímabili Carrie Lam lýkur en mikil ókyrrð hefur verið í Hong Kong síðustu mánuði. Samkvæmt heimildum Financial Times verður eftirmaðurinn ráðinn í mars og mun sitja út yfirstandandi kjörtímabil.

Þeir sem helst eru nefndir til sögunnar sem eftirmenn Lam eru tveir af fyrrverandi fjármálaráðherrum Hong Kong; Norman Chan og Henry Tang. 

Sá síðarnefndi hefur látið hafa eftir sér að hann styðji núverandi leiðtoga og muni ekki tjá sig um vangaveltur.

Lam sagði í byrjun september að hún myndi hætta ef hún gæti. 

„Hefði ég eitt­hvert val,“ sagði Lam, „þá væri það fyrsta sem ég myndi gera að segja af mér eft­ir að hafa beðist inni­lega af­sök­un­ar.“ Síðar sagðist hún aldrei hafa beðið kínversk stjórnvöld um að leyfa sér að segja af sér til að binda enda á erfiðleikana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert