Trump tók á móti ofurhetjum og kúrekum

Risaeðlur, blettatígur, kúrekar og ofurhetjur. Gestirnir sem sóttu Hvíta húsið heim í gær voru af nokkuð öðrum toga en vant er þegar forsetahjónin Donald og Melania Trump tóku þar á móti grímuklæddum börnum í tilefni Halloween-hátíðarinnar.

Donald og Melania Trump í góðum félagsskap.
Donald og Melania Trump í góðum félagsskap. AFP

Ekki var annað að sjá en að hjónunum færist þetta vel úr hendi, en þetta er þriðja Halloween-hátíðin sem þau halda í húsinu við Pennsylvaníubreiðgötu númer 1600, þar sem Hvíta húsið stendur.

Myndarlegum graskerjum var stillt upp til skrauts.
Myndarlegum graskerjum var stillt upp til skrauts. AFP
Í Hvíta húsinu í gær.
Í Hvíta húsinu í gær. AFP
Nokkrir komu í búningi Hogwart-galdraskólans sem þekktur er úr bókunum …
Nokkrir komu í búningi Hogwart-galdraskólans sem þekktur er úr bókunum um Harry Potter. AFP




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert