Staðfestu dauðadóm yfir fjórða morðingjanum

Rachid Afatti, Ouziad Younes og Ejjoud Abdessamad eru grunaðir um …
Rachid Afatti, Ouziad Younes og Ejjoud Abdessamad eru grunaðir um að hafa drepið konurnar tvær. AFP

Dómstólar í Marokkó staðfestu dauðarefsingu yfir fjórða morðingja tveggja skandínavískra stúlkna sem þeir myrtu á hrottafenginn hátt og birtu myndband af ódæðinu. Þrír af þeim 24 mönnum í vígahópnum höfðu áður verið dæmdir til dauða fyrir að myrða Louisa Vestera­ger Jes­per­sen, 24 ára frá Dan­mörku, og Mar­en Ue­land, 28 ára frá Nor­egi, en þær fund­ust látn­ar í tjaldi sínu í Atlas-fjöll­un­um 17. des­em­ber. Hinir fengu dóm sem spannar frá 5 árum og upp í 30 ár. ár. 

Þrátt fyrir að þeir hafi verið dæmdir til dauða hefur enginn verið tekinn af lífi í Marokkó frá árinu 1993. Ástæðan er sú að ekki er pólitísk sátt um lögmæti þeirra. Dómurinn staðfesti fangelsisdóm, frá fimm til 30 ára yfir 19 mannanna auk þess þyngdi hann dóm yfir einum úr 15 árum og upp í 20 ár. 

Þrír þeirra ákærðu sem myndin er af þeir: Ejjoud, You­nes Ouaziyad, 27 ára og Rachid Afatti, 33 ára, var gert að sök að hafa heitið víga­sam­tök­un­um Ríki íslams holl­ustu og framið morðin.

Mennirnir þrír voru einnig dæmdir til að greiða fjölskyldu Ue­land 190 þúsund evrur í skaðabætur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert