Fundu lík aðgerðasinna sem saknað hafði verið

AFP

Lík aðgerðasinna sem barist hafði fyrir réttindum transfólks fannst í El Salvador í ánni Torola en hans hafði verið saknað síðan á þriðjudaginn.

Fram kemur í frétt AFP að hendur Jade Camila Diaz, sem var 27 ára gömul, hafi verið bundnar fyrir aftan bak áður en hún var myrt. Höfðu sekkir fullir af grjóti verið notaðir til þess að þyngja líkið svo það sykki í ána.

Diaz er önnur transkonan sem er myrt í El Salvador undanfarnar tvær vikur en mannréttindasamtök hafa gagnrýnt stjórnvöld í landinu harðlega fyrir að taka ekki glæpi gegn transfólki nægjanlega föstum tökum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert