Samherjamálið enn eitt norræna bankahneykslið?

Þátt­ur DNB í bankaviðskipt­um Sam­herja í Namib­íu verður vænt­an­lega rann­sakaður …
Þátt­ur DNB í bankaviðskipt­um Sam­herja í Namib­íu verður vænt­an­lega rann­sakaður af norsk­um yf­ir­völd­um. Af vef DNB

Er enn eitt hneykslismálið vegna norrænna banka í uppsiglingu? spyr danska ríkisútvarpið DR í umfjöllun sinni um aðkomu DNB, stærsta banka Noregs að Samherjamálinu.

Fram­ganga Sam­herja í Namib­íu, eft­ir um­fjöll­un Kveiks í Rík­is­sjón­varp­inu, hef­ur vakið at­hygli er­lendra fréttamiðla sem fjalla um málið. Í frétt New York Times er greint frá því að norski rík­is­bank­inn, DNB, hygg­ist rann­saka bankaviðskipti Sam­herja eft­ir að upp­lýs­ing­arn­ar komu fram í þætt­in­um. 

DR er meðal þeirra miðla sem fjalla um Samherjamálið á vef sínum og er þar DNB sagður kunna að hafa verið með „beinum hætti“ þátttakandi í mútugreiðslum til afrískra embættismanna.

Nefnir DR, það sem þegar hefur komið fram í umfjöllun Stundarinnar, að í maí 2018 hafi DNB lokað bankreikningum sem tilheyrðu skúffufyrirtæki á Marshall-eyjunum eftir að bandarískur banki hafnaði færslunum. Þetta hafi bankinn gert af því að hættan á sektum frá bandarískum yfirvöldum vegna skúffufyrirtækisins væri of mikil.

„Bandarískur banki bregst við, en ekki DNB. Hvað segir það um eftirlitskerfið í DNB? Er kerfi DNB jafn gott og bandaríska regluverkið eða eins og kröfur Evrópusambandsins um peningaþvætti segja til um?“ spyr Tina Søreide hagfræðiprófessor við Norges Handelshøjskole í samtali við DN.no.

Thomas Midteide, aðstoðarforstjóri DNB segir bankann ekki tjá sig um slíkar vangaveltur. „Okkar hlutverk er að greina efnahagsbrotadeild frá grunsamlegum greiðslum og við greinum frá þúsundum slíkum árlega, en við getum ekki sagt hvað sendum lögreglu.“

Aftenposten hafði eftir Even Wester­veld, talsmanni bankans, fyrr í dag að þáttur DNB í bankaviðskipt­um Sam­herja í Namib­íu verði vænt­an­lega rann­sakaður af norsk­um yf­ir­völd­um.

Alþjóðlegi fiski­miðill­inn Und­ercur­rent fylg­ist greini­lega náið með gangi mála því í frétt í dag er sagt frá því að „Bald­vins­son“ hafi stigið til hliðar sem for­stjóri Sam­herja í kjöl­far rann­sókn­ar á meint­um brot­um fyr­ir­tæk­is­ins, en átt er við Þor­stein Má. Tíma­bundið í hans stað hef­ur Björgólf­ur Jó­hanns­son tekið við stjórntaum­un­um. 

Breski viðskiptamiðill­inn CNBC fjall­ar einnig um málið. Í frétt­inni er sagt frá upp­sögn­um tveggja namib­ískra ráðherra eft­ir upp­lýs­ing­arn­ar sem komu fram í skjöl­um Wiki­leaks. Farið er yfir málið og vísað meðal ann­ars til um­fjöll­un­ar Stund­ar­inn­ar um málið. Sömu sögu er að segja í frétt Euronews

Í þætt­in­um var sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Sam­herji m.a. sagt hafa greitt hundruð millj­ón­a í mút­ur til ein­stak­linga tengd­um sjáv­ar­út­vegs­ráðherra Namib­íu til að tryggja aðgang að veiðikvóta þar í landi. 

Greint hef­ur verið frá því á mbl.is að norsk­ir miðlar hafa fjallað tals­vert um málið. Sam­herji teng­ist hvoru tveggja norska rík­is­bank­an­um og á 40% hlut í tog­ara­út­gerðinni Nergårds.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert