Kjósendur flykkjast á kjörstaði í Hong Kong

Kjósendur hafa flykkst á kjörstaði í Hong Kong í dag.
Kjósendur hafa flykkst á kjörstaði í Hong Kong í dag. AFP

Kjósendur hafa í dag flykkst á kjörstaði í Hong Kong vegna héraðskosningum, en kosningaþátttaka í slíkum kosningum er almennt dræm og þá vekja þær ekki mikla athygli. Í kjölfar mótmæla sem hafa staðið yfir síðan snemma í júní er áhugi íbúa á þessum kosningum hins vegar mjög mikill, enda eru þetta einu kosningarnar þar sem íbúar geta haft bein lýðræðisleg áhrif.

Kosið er um 452 fulltrúa í þeim 18 héruðum sem Hong Kong er skipt í, en í þingkosningum þegar leiðtogi sjálfstjórnarhéraðsins, er valinn eru það um 1.200 fulltrúar, sem valdir hafa verið beint og óbeint í gegnum valdakerfi héraðsins, sem fulltrúar hagsmunahópa, stjórnmálaflokka og trúarflokka. Eru það oftar en ekki stuðningsmenn Kína sem skipa þær stöður.

Carrie Lam, leiðtogi heimastjórnarinnar í Hong Kong.
Carrie Lam, leiðtogi heimastjórnarinnar í Hong Kong. AFP

Kosningarnar í dag þykja því ákveðinn prófsteinn á vinsældir Carrie Lam, leiðtoga heimastjórnarinnar, sem styður aðgerðir kínverskra stjórnvalda á svæðinu. Að öllu jöfn hafa þess­ar kosn­ing­ar verið tíðinda­litl­ar og meiri­hluti fram­bjóðenda hef­ur verið hliðholl­ur kín­versk­um stjórn­völd­um, en nú er breyt­ing þar á. And­stæðing­ar kín­verskra stjórn­valda von­ast til þess að fá meiri­hluta at­kvæða og hafa hvatt ákaft til kosn­ingaþátt­töku. 

Mörg hundruð metra langar raðir hafa verið á kjörstöðum í morgun og eftir aðeins fimm tíma kosningar hafði þegar þriðjungur þeirra 4,13 milljóna manna, sem eru skráðir kjósendur, lokið við að kjósa. Er það meira en tvöföld kosningaþátttaka miðað við síðustu héraðskosningar árið 2015.

Langar raðir hafa myndast á kjörstöðum og er kosningaþátttakan tvöfalt …
Langar raðir hafa myndast á kjörstöðum og er kosningaþátttakan tvöfalt meiri en fyrir fjórum árum. AFP

Þrátt fyrir mótmæli og óeirðir undanfarna mánuði hafa kosningarnar núna gengið friðsamlega fyrir sig, en leiðtogar mótmælanna hvöttu íbúa Hong Kong til að láta af óeirðum svo stjórnvöld í Kína hefðu ekki ástæðu til að fresta kosningunum. Lögregla hefur verið sýnileg við kjörstaði, en ekki hefur verið greint frá neinu ofbeldi í tengslum við kosningarnar.

Beðið eftir að komast á kjörstað.
Beðið eftir að komast á kjörstað. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert