Katrín í kvöldverðarboði drottningar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sést hér standa á ská fyrir aftan …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sést hér standa á ská fyrir aftan Erdogan Tyrklandsforseta. Ljósmynd/Twitter

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var í góðum félagsskap í Buckingham-höll í kvöld þegar hún stillti sér upp ásamt öðrum þjóðarleiðtogum Atlantshafsbandalagsins og Elísabetu Bretadrottningu og Karli Bretaprinsi nú undir kvöld.

Katrín og Guðlaug­ur Þór Þórðar­son ut­an­rík­is­ráðherra sækja fund leiðtoga Atlantshafsbandslagsins í Lundúnum sem hófst í dag og lýkur á morgun.

Katrín sótti móttöku í Buck­ing­ham-höll í boði Breta­drottn­ing­ar og kvöld­verð í Down­ingstræti 10 í boði breska for­sæt­is­ráðherr­ans.

Leiðtoga­fund­ur­inn er hald­inn í til­efni af sjö­tíu ára af­mælis­ári Atlants­hafs­banda­lags­ins. Meg­in­efni fund­ar­ins eru breytt ör­ygg­is­um­hverfi, horf­ur í af­vopn­un­ar­mál­um, aðgerðir gegn hryðju­verk­um, fjár­fram­lög til banda­lags­ins og sam­skipt­in við Rúss­land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert