Telja Trump hafa brotið af sér

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Flest sönnunargögn benda til þess að rík ástæða sé til að ákæra Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir embættisbrot að því er fram kemur í skýrslu leyniþjónustunefndar fulltrúardeildar Bandaríkjaþings.

Vitna­leiðslur hafa und­an­farn­ar vik­ur staðið yfir í full­trúa­deild Banda­ríkjaþings vegna rann­sókn­ar þings­ins á embætt­is­verk­um for­set­ans en Trump er sagður hafa þvingað Volodym­ir Zelenskí Úkraínu­for­seta í lok júlí til verka sem komu Trump vel.

Í skýrslunni, sem er 300 blaðsíður, kemur meðal annars fram að Trump hafi ógnað öryggi þjóðarinnar, sett pólitíska hagsmuni ofar hagsmunum Bandaríkjanna og reynt að grafa undan forsetakosningunum.

Skýrslan verður notuð til að ákveða hvort leyniþjónustunefndin muni senda málið til dómsmálanefndar og þá í kjölfarið hvort Trump verði ákærður fyrir embættisbrot í starfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert