Kveikt í fórnarlambi nauðgunar

AFP

Ung indversk kona berst fyrir lífi sínu eftir að kveikt var í henni þegar hún var á leið í dómsal þar sem hún átti að bera vitni í nauðgunarmáli. 

Konan, sem er 23 ára gömul, hafði lagt fram nauðgunarkæru á hendur tveimur mönnum í Uttar Pradesh í mars. Fimm menn, þar á meðal annar þeirra sem nauðgaði henni, hafa verið handteknir grunaðir um að hafa kveikt í konunni, að því er segir í frétt BBC.

Hún var á leið á lestarstöðina þegar hópur manna réðst á hana og dró hana í burtu. Mennirnir helltu síðan yfir hana eldfimum vökva og kveiktu í. Hún er lífshættulega slösuð á gjörgæslu með brunasár víða um líkamann.

Árásin átti sér stað í Unnao-héraði sem nýlega komst í fréttirnar vegna annars nauðgunarmáls. Þar kærði kona þingmann fyrir að hafa nauðgað henni. Eftir að hafa lagt fram kæruna slasaðist konan alvarlega í bílslysi og tvær frænkur hennar létust. Jafnframt slasaðist lögmaður konunnar.

Aðeins rúm vika er síðan lík 27 ára gamallar konu fannst í úthverfi indversku borgarinnar Hyderabad. Talið er að hópur manna hafi nauðgað henni áður en þeir kveiktu í henni. Fjórir eru í haldi lögreglu vegna málsins.Twitter post by @Zebaism: Another Shocker- This from Unnao, the city infamous for the BJP MLA rape case. Another girl who had filed a rape complaint earlier this year against 2 people has been SET ABLAZE this morning-fighting for her life.Another day. Another girl. Just a week after Hyderabad.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert