Fjölskyldurnar ósáttar með ákvörðun Boeing

David Calhoun er ekki rétti maðurinn í starfið að mati …
David Calhoun er ekki rétti maðurinn í starfið að mati fjölskyldna þeirra sem létust í flugslysunum. AFP

Fjölskyldumeðlimir þeirra sem létust í banvænum flugslysum þar sem Boeing 737-MAX vélar brotlentu eru ekki sáttir með eftirmann fyrrum framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Dennis Muilenberg, fyrrum framkvæmdastjóri fyrirtækisins, sagði af sér í dag. Er afsögnin sögð tilraun fyrirtækisins til að endurheimta traust almennings eftir tvö banvæn flugslys þar sem 737 MAX vélar fyrirtækisins áttu í hlut. BBC greinir frá þessu.

Fleiri en 340 manns létu lífið í flugslysunum og var Boeing gagnrýnt fyrir að hafa sett hagnað framar öryggi í sinni ákvarðanatöku. 

Dennis Muilenburg fyrrum framkvæmdastjóri Boeing.
Dennis Muilenburg fyrrum framkvæmdastjóri Boeing. AFP

Fjölskyldur fórnarlambanna fagna afsögn Muilenbergs, sem þær segja löngu tímabæra. Þó segja fjölskyldurnar að ákvörðun Boeing um að skipta honum út fyrir stjórnarmeðlim sem hefur setið í stjórn fyrirtækisins í langan tíma ekki til þess fallna að auka traust til fyrirtækisins. Sú ákvörðun veki upp spurningar um vilja Boeing til að gera breytingar á rekstrinum. 

„Ekki rétti maðurinn í starfið“

Eftirmaður Muilenbergs er David Calhoun. Hann hefur setið í stjórn fyrirtækisins síðan árið 2009 og er núverandi stjórnarformaður. 

„Á sama tíma og afsögn Muilenbergs er skref í rétta átt þá er skýrt að Boeing þarf að lappa upp á helstu stjórnunarstöður innan fyrirtækisins,“ sagði Paul Njoroge, sem missti konu sína, þrjú börn og tengdamóður í öðru flugslysanna. 

„Calhoun er ekki rétti maðurinn í starfið,“ bætti Njoroge við. Fjölskyldur fleiri fórnarlamba flugslysanna tóku undir orð Njoroge.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert