Flugritar þotunnar fundnir

Björgunarfólk að störfum við brak farþegaþotunnar. Allir um borð fórust, …
Björgunarfólk að störfum við brak farþegaþotunnar. Allir um borð fórust, 168 farþegar og níu manna áhöfn. AFP

Búið er að finna báða flugrita úkraínsku Boeing-737 farþegaþotunnar sem fórst í Íran í nótt skömmu eftir flugtak frá Tehran á leið til Kiev, höfuðborgar Úkraínu. 168 farþegar og níu manna áhöfn fórst í slysinu. 

Flugmálayfirvöld í Íran greindu frá þessu.

Vélin brotlenti um 45 kílómetra norðvestur af Imam Khomeini-flugvellinum í Tehran en það virðist sem eldur hafi komið upp í vélinni skömmu áður en hún brotlenti.

Orsakir slyssins eru ókunnar en vélin var smíðuð fyrir fjórum árum og hafði nýlega farið í reglubundið tæknilegt eftirlit. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert