Hópsýking lungnabólgu í Kína af völdum nýrrar veiru

Á tímabilinu 31. desember 2019 til dagsins í dag hefur …
Á tímabilinu 31. desember 2019 til dagsins í dag hefur sýkingin verið staðfest hjá 41 einstaklingi og einn látist. AFP

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC) hafa vakið athygli á hópsýkingu lungnabólgu í Wuhan-borg í Suður-Kína að undanförnu. Á tímabilinu 31. desember 2019 til dagsins í dag hefur sýkingin verið staðfest hjá 41 einstaklingi og einn látist.

Allir virðast hafa smitast á matarmarkaði í Wuhan borg (Seafood City market) en ekkert smit á milli manna hefur verið staðfest, að því er segir á vef Embættis landlæknis.

Þar segir, að svo virðist sem lungnabólgan sé orsökuð af nýrri kórónaveiru sem sé frábrugðin þeim kórónaveirum sem orsökuðu SARS (Severe acute respiratory syndrome) í Suður-Kína (og fleiri löndum) á árunum 2002-2003 og MERS (Middle East respiratory syndrome) sem greinst hafi í Mið-Austurlöndum frá 2012. Báðar þessar sýkingar hafa valdið dauða hjá mörg hundruð einstaklingum. Ekkert bóluefni er til við sýkingunni og engin veirulyf að sögn sóttvarnalæknis. 

„Að svo stöddu er ekki ástæða til neinna sértækra aðgerða og ekki ástæða til ferðatakmarkana til Suður-Kína.

Einstaklingar sem koma hingað til lands frá Wuhan-borg í Kína með kvef, hósta og hita eru beðnir um að upplýsa heilbrigðisstarfsmenn um sínar ferðir. Ekki er þörf á að allir einstaklingar leiti til heilbrigðiskerfisins sem nýlega hafa verið í Kína og fá kvef eða hósta. Einungis þeir sem veikjast alvarlega eða sem áhyggjur hafa af sínum veikindum leiti til heilbrigðiskerfisins. Upplýsingum um veikindin í Kína hefur verið dreift til heilsugæslunnar og til smitsjúkdómalækna,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert