Létust þegar rúta keyrði í stóra holu

Rútan keyrði ofan í risastóra holu.
Rútan keyrði ofan í risastóra holu. AFP

Að minnsta kosti sex létust og 16 slösuðust þegar rúta keyrði ofan í risastóra holu í Kína í gærkvöldi. Atvikið átti sér stað fyrir utan sjúkrahús í borginni Xining í miðhluta Kína.

Myndbandsupptökur úr eftirlitsmyndavélum sýna sprengingu í holunni skömmu eftir að rútan keyrði þar ofan í.

Rútan var dregin upp úr holunni.
Rútan var dregin upp úr holunni. AFP

Ekki er ljóst hversu margir voru í rútunni en á myndbandsupptökum sjást vegfarendur reyna að bjarga fólki úr holunni.

Samkvæmt erlendum fréttamiðlum liggja tildrög slyssins ekki fyrir en yfirvöld rannsaka málið. 

Slys á borð við þetta eru ekki óalgeng í Kína en þau eru rakin til lélegs frágangs eftir framkvæmdir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert