Boris varar Pútín við

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. AFP

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, varaði Vladimir Pútín Rússlandsforseta við vegna óskammfeilinnar árásar þarlendra stjórnvalda á rússneska gagnnjósnarann Sergei Skripal fyrir tveimur árum.

Johnson og Pútín hittust í fyrsta skipti í dag síðan Johnson tók við embætti forsætisráðherra í Bretlandi í júlí. 

Þar sagði Johnson að glæfraleg notkun efnavopna og tilraun Rússa til að myrða saklaust fólk í Bretlandi væri eitthvað sem mætti aldrei gerast aftur.

Sergei Skripal.
Sergei Skripal. AFP

Eitrað var fyr­ir Ser­gei Skripal og Júlíu dótt­ur hans á götu úti í Sal­isbury 2018 og síðar lést Dawn Stur­gess af völd­um eitr­un­ar­inn­ar. Tveir menn, sem talið er að starfi fyr­ir rúss­nesku leyniþjón­ust­una, Anatolií Chepiga og Al­ex­and­er Mis­hk­in, eru grunaðir um verknaðinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert