Framfaraflokkurinn sagði sig rétt í þessu úr ríkisstjórn Noregs hvar hann hefur setið í sex ár, tvo mánuði og tuttugu daga.
„Það er enginn grundvöllur fyrir því að halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram,“ sagði Siv Jensen, formaður Framfaraflokksins, á blaðamannafundi í dag.
„Ég fór inn í ríkisstjórn með Framfaraflokkinn og nú fer ég aftur út úr ríkisstjórninni með flokkinn. Ég geri það vegna þess að það er það eina rétta í stöðunni,“ bætti Jensen við.
Hún sagðist vera stolt af því sem flokkurinn hefði áorkað í ríkisstjórn, sérstaklega til að byrja með þegar einungis Framfaraflokkurinn og Hægriflokkurinn sátu í ríkisstjórn. Síðan fleiri komu inn í stjórnina hafi hún orðið stefnulaus, að sögn Jensen.
Í byrjun árs 2018 kom Frjálslyndi flokkurinn Venstre inn í ríkisstjórnina og í byrjun síðasta árs gekk Kristilegi þjóðarflokkurinn einnig inn í hana.
Það sem gerði útslagið fyrir Framfaraflokkinn var ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að flytja norska konu af pakistönskum ættum til landsins ásamt tveimur ungum börnum hennar. Faðir barnanna er vígamaður Ríkis íslams.
Í morgun funduðu Jensen og Solberg um málið og Jensen lagði fram kröfur sem uppfylla þyrfti ef Framfaraflokkurinn ætti að sitja áfram í ríkisstjórn. Á meðal krafna var hert innflytjendalöggjöf.
Ákvörðun stjórnvalda er sögð vera í mannúðarskyni en Framfaraflokkurinn vildi meina að hættan samfara komu konunnar væri meiri en mannúðarskylda Noregs þegar kemur að stuðningi við börn.
Eftir að Jensen tilkynnti fráhvarf Framfaraflokksins tók hún fram að það væri eðlilegt að flokkurinn liti enn á Ernu Solberg, sitjandi forsætisráðherra, sem forsætisráðherra Noregs þrátt fyrir að Framfaraflokkurinn segði sig úr ríkisstjórn.
„Við höfum enga löngun til að skipta um forsætisráðherra og teljum að Solberg sé sú rétta til að leiða landið á komandi tímum.“