11 brunnu inni í Síberíu

Skjáskot af Google maps

Ellefu manneskjur létust þegar eldur kom upp í timburkofa í afskekktu þorpi í Síberíu. Þorpið Prichulímskí er í Tomsk-héraði en eldurinn kom upp í nótt. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði voru Úsbekistar meðal þeirra sem létust. Er talið að allir þeir sem létust hafi verið útlendingar. Tveimur tókst að komast út úr brennandi kofanum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert