Hluta Kínamúrsins lokað vegna veirunnar

Fólk á gangi á Kínamúrnum.
Fólk á gangi á Kínamúrnum. AFP

Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að loka hluta Kínamúrsins og öðrum þekktum ferðamannastöðum til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kórónaveirunnar.

Ming-grafhýsunum og Yinshan Pagoda verður einnig lokað frá og með morgundeginum.

Þjóðarleikvanginum í Peking hefur þegar verið lokað.

26 eru látn­ir og staðfest hef­ur verið að 830 hafi veikst af veirunni, sem er sögð eiga upptök sín í kínversku borginni Wuhan. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert