Böðuðu sig á mótorhjóli á ferð

Lögreglu tókst að hafa uppi á mönnunum eftir að athygli …
Lögreglu tókst að hafa uppi á mönnunum eftir að athygli hennar hafði verið vakin á athæfi þeirra. AFP

Lögreglan í Víetnam hefur sektað tvo karlmenn sem virtust baða sig á mótorhjóli á fullri ferð. Annar vegfarandi tók athæfið upp á snjallsímann sinn.

Mennirnir voru báðir berir að ofan á mótorhjólinu og á milli þeirra var fata með vatni og sápu. Sá sem sat aftan á hjólinu virtist svo vera að þvo hár sitt, auk þess sem hann hellti úr fötunni yfir sjálfan sig og þann sem stjórnaði hjólinu.

Mennirnir voru harðlega gagnrýndir á samfélagsmiðlum þegar myndskeiðið fór í dreifingu. Lögreglu tókst svo að hafa uppi á mönnunum eftir að athygli hennar hafði verið vakin á athæfi þeirra.

Sekt mannanna hljóðaði upp á um 1,8 milljónir víetnamskra donga, sem jafngildir þó aðeins um 10 þúsund krónum, fyrir umferðarlagabrot.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert