McDonalds lokar í Hubei-héraði

Einn af fjölmörgum McDonalds-stöðum í Kína.
Einn af fjölmörgum McDonalds-stöðum í Kína. AFP

McDonalds greindi frá því í dag að ákveðið hefði verið loka öllum veitingastöðum fyrirtækisins í Hubei-héraði í Kína en kórónaveiran á upptök sín í borginni Wuhan í héraðinu.

Dauðsföll­um af völd­um kór­óna­veirunn­ar held­ur áfram að fjölga og hafa kín­versk yf­ir­völd staðfest rúmlega 130 dauðsföll og meira en 6.000 manns hafa smitast.

Flugfélög hafa aflýst flugferðum til Kína og þá hafa utanríkisráðuneyti ýmissa ríkja ráðið fólki frá ferðalögum til Kína.

Chris Kempcz­inski, forstjóri McDonalds, sagðist hafa áhyggjur af ástandinu og þess vegna hefði verið ákveðið að loka öllum veitingastöðunum í Hubei-héraði. 

Þrjú þúsund aðrir McDonalds-staðir í Kína verða hins vegar áfram opnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert