Tugum bjargað úr verslunarmiðstöðinni

AFP

Tugum skelfingu lostinna viðskiptavina hefur verið bjargað út úr verslunarmiðstöð þar sem vopnaður hermaður hefur haldið fólki í gíslingu. Sérsveitir lögreglunnar segjast hafa náð tökum á ástandinu.

Hermaðurinn, Jakraphanth Thomma, hefur drepið tuttugu manns og sært tugi í taílensku borginni Nakhon Ratchasima.

AFP

Sérsveitin hvetur fólkið til þess að lyfta upp höndum og gera grein fyrir sér þar sem það er á fyrstu hæð verslunarmiðstöðvarinnar. Lögreglan heitir því að koma þeim heilu og höldnu út úr miðstöðinni en vígamannsins er enn leitað. Óttast er að hann reyni að laumast út meðal viðskiptavinanna.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert