Sóttkví eða refsing

Heilbrigðisstarfsmaður fyrir utan sjúkrahús í Peking.
Heilbrigðisstarfsmaður fyrir utan sjúkrahús í Peking. AFP

Borgaryfirvöld í Peking, höfuðborg Kína, hafa skipað öllum íbúum sem snúa aftur til borgarinnar að fara í 14 daga einangrun, ellegar verði þeim gert að sæta refsingu. Samkvæmt kínverskum ríkisfjölmiðli er þetta liður í að reyna að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar COVID-19.

Íbúum hefur verið sagt að vera í einangrun heima hjá sér eða dvelja í sérstökum einangrunarbúðum eftir að þeir koma aftur heim úr fríi en rúmlega 20 milljónir búa í Peking.

AFP

Gripið hefur verið til þessara ráðstafana eftir að greint var frá fyrsta smitinu í Afríku.

Alls hafa 1.384 látist af völdum veirunnar sem á upptök sín í kínversku borginni Wuhan, þar sem dánartíðni er langhæst.

Sér­fræðing­ar við verk­fræðideild John Hopk­ins-há­skóla í Mary­land í Banda­ríkj­un­um hafa út­búið gagn­virkt kort þar sem hægt er að fylgj­ast með út­breiðslu kór­ónu­veirunn­ar. Kortið má nálg­ast hér en það er upp­fært reglu­lega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert